Unghross
Hér getur þú skoðað á aðgengilegan hátt 5 síðustu ræktunarárganga okkar í Torfunesi. Hrossin úr þessum árgöngum eru að sýna kosti sem vekja með okkur góðar vonir um árangur í framtíðinni.
Nú eru að alast upp á fjórða tug trippa auk efnilegra unghrossa og einhver þeir verða vonandi sýnileg næstu árum, á mótum víðsvegar um landið.
Hér gefur að líta árganginn frá sumrinu
2003 en þar eru nokkur efnileg trippi sem gaman verður að fylgjast með sérstaklega í ljósi þess að feðurnir eru margir hverjir í úrvalsdeild yngri stóðhesta sem eru að sanna sig í ræktuninni nú og næstu ár. Biskup frá Torfunesi
IS2003166212 Boði frá Torfunesi
IS2003166214 Dagrenning frá Torfunesi
IS2003266208 Elding frá Torfunesi
IS2003266201 Fígaró frá Torfunesi
IS2003166200 Framtíð frá Torfunesi
IS2003266202 Ganti frá Torfunesi
IS2003166213 og Nótt frá Torfunesi
IS2003266211.
Og sama má segja um árganginn frá sumrinu
2002. Þar eru að mótast miklir efnisgripir sem við bindum vonir við að verði meðal fulltrúa okkar á Landsmótinu 2006. Ábóti frá Torfunesi
IS2002166212. Baugur frá Torfunesi
IS2002166207, Bylur frá Torfunesi 2002166214, Draupnir frá Torfunesi
IS2002166208, Fruma frá Torfunesi
IS2002266202, Hylling frá Torfunesi
IS2002266203, Máttur frá Torfunesi
IS2002166211 og Undri frá Torfunesi
IS2002166209.
Hann var ekki stór árgangurinn frá fyrsta ári nýrrar aldar
2001.
En hann fer væntanlega af stað í frumþjálfun á næsta ári og því þar næsta. Þarna eru nokkur trippi sem lofa mjög góðu. Faldur frá Torfunesi
IS2001166214, Hugur frá Torfunesi
IS2001166203, Myrkva frá Torfunesi
IS2001266211 og Sunna frá Torfunesi
IS2001266212.
2000 Aldamótakynslóðin er að koma inn í þjálfunina í vetur og næsta vor ætti að vera ljóst hvaða efnisgripir blanda sér í keppnir sumarsins. Brimar frá Torfunesi
IS2000166212, Byr frá Torfunesi
IS2000166214, Kvintett frá Torfunesi
IS2000166201.
1999 "Yngsta ræktunarkynslóðin" er nú að byrja að láta til sín taka á sýningum og í ræktuninni heima fyrir og víðar. Við bindum vonir við að geta sýnt hestafólki víðsvegar frá, þessa gripi okkar næsta sumar en fyrstu afkvæmi þeirra eru nú að vaxa úr grasi. Blossi frá Torfunesi
IS1999166209, Blær frá Torfunesi
IS1999166214, Gellir frá Torfunesi
IS1999166213, Sorti frá Torfunesi
IS1999166208, Fluga frá Torfunesi
IS1999266205 og Tangó frá Torfunesi
IS1999166211.
Folöldin í Torfunesi fá að ganga lengi undir mæðrum sínum og njóta því frá upphafi góðs atlætis og mikillar gjafar. Baldvin byrjar að vinna með hrossin mjög ung. Þau eru snemma gerð bandvön og þjálfuð í taumhring sem gerir árangur tamningatímans meiri. Hrossin eru bráðger, taka snemma út þroska og flest þeirra eru spök. Öll afkvæmi á búinu eru örmerkt.