Hryssur

Í Torfunesi taka aðeins úrvalshryssur þátt í ræktuninni
Ein af grundvallareglum ræktunarinnar er að nota hryssur sem hafa hlotið 1. verðlaunadóma. Stofnhryssur búsins, Toppa 4892 frá Rangá
IS1961266242 og Sokka 3069 frá Sólheimagerði lögðu grunninn. Seinna komu inn afkvæmi þeirra og aðrar úrvalshryssur sem þóttu hæfa ræktunarmarkmiðum í Torfunesi.
Í dag eru ræktunarhryssur Torfunessbúsins Bylgja frá Torfunesi
IS1991266201. Mánadís frá Torfunesi
IS1992266205 og Abbadís frá Torfunesi
IS1989266208. Hryssur sem hafa hlotið háa viðurkenningar í kynbótadómum.
Af yngri hryssum sem nú eru komnar inn í ræktina eru; Gletta frá Torfunesi
IS1995266205 Röst frá Torfunesi
IS1998266210. Þær hlutu báðar 1. verðlaun á Landsmótinu 2002 og eru farnar að skila afkvæmum inn í ræktina.