Torfunes hross



Vel byggð hross með fjölþætta hæfileika

Hrossin frá Torfunesi prýða fremstu raðir íslenskra hesta og eru þekkt um árabil á meðal hestafólks hér heima og erlendis.
Á Landsmótinu 1998 á Melgerðismelum voru t.d 7 hross frá Torfunesi meðal þátttakenda, þar af náðu þrjú í verðlaun.
Á Vindheimamelum 2002 voru 5 hross í keppni og náðu þar 2 í úrslit. Á Hellu 2004 voru Blær og Tangó frá Torfunesi sýndir í kynbótasýningu, Máttur frá Torfunesi á Hellu 2006 og svo Máttur í kynbótasýningu og Blær í A flokki á landsmóti á Hellu 2008. Auk þessa hefur fjöldi hrossa frá Torfunesi komið fram á sýningum og stærri mótum.

Í ræktunina eru einungis valdir kostagripir og efnileg vel ættuð unghross og er sérstök áhersla er lögð á gæði tölts og brokks.
Frá Torfunesi koma örgeðja, þjál en viljamikil, samvinnuþýð og traust hross. Þau eru dugmikil og léttbyggð. Svífandi og hreingeng. Góðir ferðafélagar sem ljúft er að ríða um langan veg. Torfuneshrossin hafa staðið sig frábærlega í gæðinga- og íþróttakeppnum og verið framarlega sem kynbótahross.
Í Torfunesræktinni eru dökkbrúnir, rauðir með stjörnum í enni, glófextir og rauðblesóttir ráðandi litir. En einnig hvítir og móálóttir.