Söluskrá hrossa



Úrvalshestar til sölu fyrir kröfuharða eigendur

Frá Torfunesræktinni hafa komið fjöldamörg hross sem vakið hafa athygli fyrir fegurð og hæfileika. Sérstök áhersla er lögð á fallegt tölt og brokk. Við í Torfunesi leggjum metnað í að útvega kaupendum hross sem standast þær kröfur sem til þeirra eru gerðar, hvort sem leitað er eftir efnilegum keppnishesti, eða góðum og traustum félaga fyrir áhugareiðmenn.
Hér gæti verið hesturinn sem þig dreymir um að eignast! Skoðaðu það sem þér lýst á og sendu okkur línu ef þú vilt frekari upplýsingar um eitthvað af hrossunum.

Vandaðu valið þegar þú kaupir þér hest
Ef þú leitar að hrossi sem þú vilt að geti uppfyllt kröfur þínar skaltu vanda valið. Hross eru lifandi dýr sem búin eru marvíslegum en mismunandi eðliskostum. Hvers munt þú krefjast af hrossinu þínu? Keppnishestar eru þjálfaður með öðrum hætti en reiðhestar fyrir fjölskylduna. Lundin, ganghæfni og byggingarlag ráða gæðum hestsins og það sem hentar einum finnst öðrum afleitt. Reynsla knapans og notkun reiðhestsins ráða síðan endanlega hvað best á við.

Við aðstoðum þig við leitina að rétta hestinum
Hjá okkur færð þú hesta sem óhætt er að segja um að uppfylli kröfur þeirra sem vilja eiga hæfileikarík, hreingeng og fallega byggð hross. En við leggjum einnig áherslu á gott lundarfar hrossanna, því við byggjum viðskiptavinahóp okkar á breiðum grunni. Við ræktum ekki hross fyrir alla. Heldur fyrir hvern einstakan hestamann sem finnur einstakling úr ræktinni okkar. Hest sem stenst kröfur og langanir eigandans.

Hafðu samband og komdu í heimsókn
Þú ert velkomin(n) í heimsókn til okkar og við veitum þér allar ráðleggingar um val á hrossi, sem hentar þínum kröfum. Í Torfunesi getur þú skoðað hrossin og reynt þau í stuttum eða lengri reiðtúrum um ýmsar af eftirminnilegum reiðleiðum landsins.

Hross frá öðrum ræktendum
Öll hross frá öðrum ræktendum sem kynnt eru hér á sölusíðunni verða einnig að standast þær kröfur sem við gerum til okkar hrossa. Þau eru skoðuð og prófuð til að sannreyna að þeirri lýsingu sem þeim fylgir, megi treysta.