Uppeldi



Gott atlæti í byrjun, tryggir árangurinn síðar

Baldvin annast sjálfur frumtamningu hrossa sinna en síðan eru þau send til reyndra tamningamanna sem þekktir eru af vönduðum vinnubrögðum. Þar ná þau frekari þroska og í þjálfuninni með öðrum hrossum fæst samanburður á kostum þeirra. Tamningamennirnir verða síðan samráðsmenn um þróun og meðferð hrossana á seinni stigum tamningatímans. Folöldin fá að ganga lengi undir mæðrum sínum og njóta því frá upphafi góðs atlætis og mikillar gjafar. Baldvin byrjar að vinna með hrossin mjög ung. Þau eru snemma gerð bandvön og þjálfuð í taumhring sem gerir árangur tamningatímans meiri. Hrossin eru bráðger, taka snemma út þroska og flest þeirra eru spök.