Umhverfið
Gott hrossaland með fjölbreyttum reiðleiðum
Torfunes jörðin er 300 hektarar af grónu land, frá fjalli og niðrundir Skjálfandafljót. Hún hentar vel fyrir hross, hvað varðar gróðurfar og landslag. Torfunes er í Ljósavatnshreppi í Þingeyjarsveit.
Til Akureyrar eru 64 km og frá Torfunesi til Húsavíkur eru 32 km. Stutt er í fallega náttúru frá staðnum. Mývatn, Goðafoss, Laxá, Aðaldalshraun og Tjörnes. Frá Torfunesi eru góðar reiðleiðir í Náttfaravíkur og inn á Flateyjardal.
Örstutt er út í Fellsskóg, þar sem útsýni er gott á Ullarfoss og Skipapoll neðan við Þingey í Skjálfandafljóti.
Allar upplýsingar um hestaferðirnar okkar má lesa um annarsstaðar á vefnum.