Ræktunarmarkmið
 

   

Hæfileikar, fegurð og góð lund

Markmið ræktunarinnar er að ná fram og ala upp fjölhæf og afkastamikil hross. Sérstök áhersla er lögð á gæði tölts og brokks. Í ræktunina eru einungis valdir kostagripir og efnileg vel ættuð unghross. Frá Torfunesi koma örgeðja, þjál en viljamikil, samvinnuþýð og traust hross. Dugmikil og léttbyggð. Svífandi og hreingeng. Góðir ferðafélagar sem ljúft er að ríða um langan veg. Þau hafa staðið sig frábærlega í gæðinga- og íþróttakeppnum og verið framarlega sem kynbótahross. Í Torfunesræktinni eru dökkbrúnir, rauðir með stjörnum í enni, glófextir og rauðblesóttir ráðandi litir. En einnig hvítir og móálóttir. Hrossin frá Torfunesi eru í fremstu röð íslenskra hesta og eru þekkt á meðal hestafólks hér heima og erlendis. Á Landsmótinu 1998 á Melgerðismelum voru t.d 7 hross frá Torfunesi meðal þátttakenda.