

Baldvin Kr. bóndi í Torfunesi er mikil félagsvera. Endalaust er honum falinn trúnaðarstörf að hálfu samferðarmanna sinna og tekur oft við þeim trúnaði.
Nú er hann formaður Þjálfa, hestamannafélagsins í Þingeyjarsýslum. Hann er formaður Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þingeyinga. Þá er hann fulltrúi hrossabænda á Bændaþingi og formaður sóknarnefndar í sinni heimasókn.
Söngur. Aukabúgrein Baldvins í Torfunesi
Sönglistin hefur í langan tíma verið aukabúgrein Baldvins og hefur hann sungið víða. Lengi söng hann með Baldri bróðir sínum og enn syngja þeir saman af og til við ýmis tækifæri, jafnt í gleði og sorg.
Þeir bræður gáfu út hljómplötu með söng sínum við undirleik Úlriks Ólasonar píanóleikara fyrir rúmum áratug. Baldvin hefur á seinni árum sungið meira einn en einnig tekið þátt í óperuuppfærslum á Laugaborg og á Akureyri, nú síðast í Sígaunabaróninum í fyrravetur.
Sígild íslensk sönglög
Baldvin gaf út geisladisk með söng sínum 1996 ásamt Juliet Folkner píanóleikara, Reyni Jónassyni harmonikkuleikara og Símon Kúran fiðluleikara. Um þetta leyti stundaði Baldvin söngnám hjá Jóni Þorsteinssyni óperusöngvara.
Á disknum eru þekkt vinsæl sönglög frá ýmsum tímum síðustu aldar og er hann meðal annars til sölu í Torfunesi en einnig er hægt að panta hann í póstkröfu, gegnum tölvupóstinn hér á vefsvæðinu.