Ræktunarbúið

Hrossaræktandi frá unga aldri
Baldvin Kr. Baldvinsson hafði stundað hrossarækt í nokkur ár þegar hann ákvað ásamt Brynhildi Þráinsdóttur eiginkonu sinni að kaupa jörðina Torfunes í Ljósavatnshreppi fyrir starfsemina. Hrossarækt sem búgrein hefur því verið starfrækt þar frá 1978.
Í upphafi var sú ákvörðun tekin að vera með fá hross og vanda í alla staði til ræktunarinnar. Stefnunni sem í upphafi var mörkuð hefur síðan verið fylgt og er undirstaða gæðanna sem einkenna í dag hestana frá Ræktunarbúinu í Torfunesi
Ræktunarbúið gert að hlutafélagi
Stofnað hefur verið sérstakt hlutafélag um Ræktunarbúið Torfunes. Markmið þess er að efla og styrkja þá ræktun sem stunduð hefur verið í Torfunesi á undanförnum árum. Árið 2007 komu svo nýjir hluthafar að búinu þegar Karl Wernersson og hjónin Guðmundur Ólason og Bryndís Mjöll Gunnarsdóttir fjárfestu í félaginu. Í framhaldi af því var ráðist í mikla uppbyggingu á búinu með endurnýjun á hesthúsi og nýrri og glæsilegri reiðhöll. Aðstaða er nú eins og best verður á kosið og enn er unnið að því að gera aðstöðuna enn glæsilegri.