Æskulýðsstarf Þjálfa Margt að gerast um helgina í Torfunesi
Æskulýðsstarf Þjálfa
Æskulýðsstarf Þjálfa
Það er
ýmislegt á döfinni hjá okkur í
æskulýðsstarfi hestamannafélagsins
ÞJÁLFA. -
Laugardagskvöldið 30. janúar: Einn þekktasti knapi landsins:
Laugardagskvöldið 30. janúar n.k. verður Mette Manseth með fyrirlestur og sýnikennslu í reiðhöllinni Torfunesi kl. 19:00 – 20:00.
Allir áhugasamir eru velkomnir, þátttökugjald aðeins 1000 kr. Komum saman og höfum gagn og gaman af.
Mette kemur til með
að halda fleiri fyrirlestra og/eða sýnikennslu
í Torfunesi í vetur, ef viðtökur verða góðar.
Sunnudaginn 31. janúar: “Baldvin býður heim”
Baldvin býður í reiðhöllina í Torfunesi frá kl. 13:00 – 16:00. Allir hestaáhugamenn eru hvattir til að mæta, með fjölskylduna
og kynnast þessari frábæru aðstöðu, notkunarmöguleikunum og starfsseminni sem þar fer fram. Æskulýðsfélagið mun einnig
kynna fyrirhugað starf félagsins; námsskeið, opna daga, hesthúsheimsóknir o.fl.. Við þyggjum góðar ábendingar og hugmyndir
um félagsstarfið
frá sem flestum. Eigum góðan eftirmiðdag saman
í reiðhöllinni í Torfunesi, öllum að
kostnaðarlausu. Kaffi, kakó
og ”með-ðíí”...
13. og 14. febrúar: - Reiðnámsskeið:
Helgina 13. og 14. febrúar verður hún Anna Rebecka með reiðnámsskeið í Torfunesi. Æskulýðsfélag Þjálfa mun greiða niður
kostnaðinn að hluta, fyrir félagsmenn, en námsskeiðið er ætlað börnum/unglingum eldri en 12 ára þ.e.a.s. fyrir þau sem eru lengra komin, -
námsskeið fyrir yngri félaga, auglýst síðar, (hafið samband við gjaldkera æskulýðsfélagsins vegna upphæðar niðurgreiðslunnar s. 4643707)
Nánari upplýsingar um námsskeiðið og skráning á netfangið brynth@isholf.is (s. 8632922)
Skráið
ykkur strax, - fyrstur kemur, - fyrstur fær....!!!
Laugardagur 20. febrúar: - Reiðhallardagur:
Takið daginn frá !!! Æskulýðsstarf Þjálfa skipuleggur fyrir félagsmenn ”opinn dag” í reiðhöllinni Torfunesi, kl. 10:00 – 16:00
Mætum með börnunum og leyfum þeim að kynnast hestamennskunni enn betur. Við leiðbeinum og aðstoðum
hvort annað. Komið endilega líka með hestinn ykkar og nýtið reiðhöllina á meðan á heimsókninni stendur.
(látið Baldvin bara vita ef hross verður meðferðis, svo hægt sé að hafa pláss í stíum yfir daginn.)
Gunnar
Óli/Viðbót og Bryndís/Gistiþjónustan Staðarhóli bjóða uppá
kraftmikla kjötsúpu í hádeginu .....
Nánari starfssemi æskulýðsfélagsins auglýst síðar. En fylgist líka endilega með á ”Facebook” síðunni
”Æskulýðsstarf Þjálfa” – og gerist vinir. Þar verða uppfærðar upplýsingar reglulega.
Athugið: Það eru engin félagsgjöld í Þjálfa fyrir börn 15 ára og yngri, svo endilega skráið ykkur í Þjálfa,
ef þið
hafið áhuga, því þannig eruð
þið sjálfkrafa í æskulýðsfélaginu.