28.1.2010 20:05

Æskulýðsstarf Þjálfa
Margt að gerast um helgina í Torfunesi

    Æskulýðsstarf Þjálfa

Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur í  æskulýðsstarfi hestamannafélagsins ÞJÁLFA.  

    Æskulýðsstarf Þjálfa

    Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur í  æskulýðsstarfi hestamannafélagsins ÞJÁLFA.  

Laugardagskvöldið  30. janúar: Einn þekktasti knapi landsins:

Laugardagskvöldið 30. janúar n.k. verður Mette Manseth með fyrirlestur og sýnikennslu í reiðhöllinni Torfunesi kl. 19:00 – 20:00. 

Allir áhugasamir eru velkomnir, þátttökugjald aðeins 1000 kr.  Komum saman og höfum gagn og gaman af.

Mette kemur til með  að halda fleiri fyrirlestra og/eða sýnikennslu í Torfunesi í vetur, ef viðtökur verða góðar. 

Sunnudaginn 31. janúar:  “Baldvin býður heim

Baldvin býður í reiðhöllina í Torfunesi frá kl. 13:00 – 16:00.  Allir hestaáhugamenn eru hvattir til að mæta, með fjölskylduna

og kynnast þessari frábæru aðstöðu, notkunarmöguleikunum og starfsseminni sem þar fer fram.  Æskulýðsfélagið mun einnig

kynna fyrirhugað  starf félagsins; námsskeið, opna daga, hesthúsheimsóknir o.fl.. Við þyggjum góðar ábendingar og hugmyndir

um félagsstarfið  frá sem flestum. Eigum góðan eftirmiðdag saman í reiðhöllinni í Torfunesi, öllum að kostnaðarlausu.  Kaffi, kakó og ”með-ðíí”... 

13. og 14. febrúar: - Reiðnámsskeið:

Helgina 13. og 14. febrúar verður hún Anna Rebecka með reiðnámsskeið í Torfunesi. Æskulýðsfélag Þjálfa mun greiða niður

kostnaðinn að  hluta, fyrir félagsmenn, en námsskeiðið er ætlað börnum/unglingum eldri en 12 ára þ.e.a.s. fyrir þau sem eru lengra komin, -

námsskeið  fyrir yngri félaga, auglýst síðar, (hafið samband við gjaldkera æskulýðsfélagsins vegna upphæðar niðurgreiðslunnar s. 4643707)

Nánari upplýsingar um námsskeiðið og skráning á netfangið brynth@isholf.is (s. 8632922)

Skráið  ykkur strax, - fyrstur kemur, - fyrstur fær....!!!  

Laugardagur 20. febrúar: - Reiðhallardagur:

Takið  daginn frá !!! Æskulýðsstarf Þjálfa skipuleggur fyrir félagsmenn ”opinn dag” í reiðhöllinni Torfunesi, kl. 10:00 – 16:00

Mætum með  börnunum og leyfum þeim að kynnast hestamennskunni enn betur.  Við leiðbeinum og aðstoðum

hvort annað.  Komið endilega líka með hestinn ykkar og nýtið reiðhöllina á meðan á heimsókninni stendur. 

(látið  Baldvin bara vita ef hross verður meðferðis,  svo hægt sé að hafa pláss í stíum yfir daginn.)

Gunnar Óli/Viðbót og Bryndís/Gistiþjónustan Staðarhóli bjóða uppá  kraftmikla kjötsúpu í hádeginu ..... 

Nánari starfssemi æskulýðsfélagsins auglýst síðar.  En fylgist líka endilega með á ”Facebook” síðunni

”Æskulýðsstarf Þjálfa” – og gerist vinir. Þar verða uppfærðar upplýsingar reglulega.

Athugið:  Það eru engin félagsgjöld í Þjálfa fyrir börn 15 ára og yngri, svo endilega skráið ykkur í Þjálfa,

ef þið  hafið áhuga, því þannig eruð  þið sjálfkrafa í æskulýðsfélaginu.   

Stjórnin 




Til baka