26.10.2009 10:51
Tamningar
Tamningar hafnar
Tamningar eru hafnar á ný eftir haustfrí.
Teknir voru inn stóðhestarnir Blær, Möttull, Emil, Gyllingur og foli á fjórða vetur úr Hellulandi. Einnig voru teknir inn hestar sem eru í söluþjálfun en það eru þeir Gammur, Kristófer, Bragur, Taktur og Freyr ásamt nokkrum aðkomuhrossum.
Um næstu mánaðamót verða tekin inn þriggja vetra tryppi, stóðhestar og hryssur, í frumtamningu.
Þeir sem hafa áhuga á að koma hrossum í tamningu og/eða sjálfum sér á reiðnámskeið, vinsamlegast hafið samband við Baldvin í síma: 863-9222.
|