26.10.2009 10:32

Tilnefning
Ræktunarbúið Torfunes tilnefnt til verðlauna
Baldvin með Kviku sem er ein af stofnhryssum búsins. Myndin er tekin í kringum árið 1985.

Ræktunarbúið Torfunes hefur verið tilnefnt sem ræktunarbú ársins 2009 ásamt sextán öðrum búum.


Ræktunarbúið Torfunes hefur verið tilnefnt ásamt sextán öðrum búum sem ræktunarbú ársins 2009. 
 
Að valinu stóð Fagráð í hrossarækt og stóð valið á milli 54 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. 

Ræktunarbúin sautján verða heiðruð á  Hótel Sögu þann 7. nóvember næstkomandi en bú ársins verður tilkynnt á uppskeruhátíð hestamanna á Broadway að kvöldi sjöunda.

Tamningamaður okkar, Erlingur, hefur verið tilnefndur til gæðingaknapa LH fyrir árið 2009 ásamt fjórum öðrum knöpum. Verður tilkynnt hver hlýtur titilinn að kvöldi sjöunda nóvember á Broadway.





Til baka