24.7.2009 11:41
Heimsmeistaramót íslenska hestsins 3. - 9. ágúst 2009
Erlingur og Máttur fara á HM
Erlingur Ingvarsson hefur verið valinn í landsliðið í hestaíþróttum ásamt Mætti og munu þeir fara út á þriðjudaginn nk.
Heimsmeistaramótið fer fram dagana 3. - 9. ágúst í Sviss.
Máttur hefur verið í miklu stuði sl. vikur og því var það mikið gleðiefni þegar hann var valinn í landsliðið nú á dögunum.
Máttur fær smá frí þegar út er komið en um aðra helgi munu Erlingur og Máttur hefja loka æfingar fyrir heimsmeistaramótið.
|